Er kominn tími á ökunám?

Hér finnur þú allar upplýsingar um hvernig þú byrjar námið — skref fyrir skref, frá námsheimild að fullnaðarskírteini.

Kennsluakstur með ökukennara (verklegt ökunám) er á bilinu 17 – 20 kennslustundir (Lágmarkið er 15 verklegir tímar hjá ökukennaranum og 2 í Ökuskóla 3). Bóklegt nám er alls 25 kennslustundir.

Þegar einstaklingur er orðinn 16 ára gamall er hægt að hefja ökunám. Byrjað er að hafa samband við ökukennara sem útskýrir hvernig ökunámi er háttað. Í valmyndinni hér að ofan er form sem hægt er að fylla út til þess að óska eftir að koma í ökukennslu hjá mér. Einnig er hægt að hafa samband við mig í síma 835 3700.

Umsókn um að hefja ökunám.

Eftir að hafa rætt við ökukennara er er sótt um námsheimild. Það er gert á netinu á island.is. Eftir að sótt hefur verið um þarf að fara með ljósmynd (35*45mm) inn á næstu skrifstofu Sýslumanns. Þegar námsheimild hefur verið veitt, er hún um leið heimild til próftöku og þá fyrst má hefja kennsluakstur hjá ökukennaranum. Með rafrænni umsókn um námsheimild þarf að skila inn eftirfarandi gögnum:

  • Passamynd (35 x 45 mm) af umsækjanda, á ljósmyndapappír, merkja- og stimplalaus og bakgrunnur skal vera einlitur. Ekki er heimilt að senda mynd rafrænt og ekki er mögulegt að notast við myndir sem teknar hafa verið til afnota í vegabréf.
  • Læknisvottorð frá heimilislækni eða viðeigandi sérfræðilækni, ef einhverri spurningu er svarað játandi í heilbrigðisyfirlýsingu.
  • Læknisvottorð frá heimilislækni eða augnlækni ef viðkomandi notar gleraugu eða linsur, hefur skerta sjón eða skert sjónsvið.

Áður en nám hefst er gott að vera búin/n að skoða hvaða ökuskóli hentar fyrir bóklega námið. Nokkrir netökuskólar eru starfræktir m.a.:

Nám í Ökuskóla 1 hefst fljótlega eftir að verkleg kennsla byrjar, yfirleitt eftir 1 – 3 kennslustundir. Þeir sem hafa bróf á léttbifhjól (AM réttindi) þurfa ekki að taka ökuskóla 1).

Umsókn um námsheimild

Þegar búið er að sækja um námheimild hjá sýslumanni er gott að setja sig aftur í samband við ökukennarann til þess að ákveða hvenær fyrsti ökutíminn er.

Ljúka þarf að lágmarki 10 kennslustundum hjá ökukennara áður en hægt er að byrja æfingaakstur með leiðbeinanda en reynslan er sú að yfirleitt hefst slíkur æfingarakstur eftir 10 – 12 kennslustundir. Þar að auki þarf að ljúka ökuskóla 1 (12 kennslustundir).

Kennsluakstur fer fram í umferð undir leiðsögn ökukennara. Notast er við hæfniviðmið til að meta framvindu ökunema. Ökukennari sendir reglulega út upplýsingar til ökunema og forráðamanna um námsframvindu.

Æfingaakstur með leiðbeinanda kemur ekki í stað kennsluaksturs með ökukennara heldur sem viðbótaræfing. Í æfingaakstri telst leiðbeinandi vera stjórnandi bifreiðar.

Skilyrði leyfis er að leiðbeinandi sé orðinn 24 ára, hafi í a.m.k. fimm ár haft gilt ökuskírteini fyrir B-flokk og hafi ekki á síðustu tólf mánuðum verið án ökuskírteinis vegna sviptingar ökuréttar eða verið refsað fyrir vítaverða aksturshætti.

Nemandi sem er að læra á beinskiptan bíl má fara í æfingaakstur með leiðbeinanda á sjálfskiptan bíl.

Um það bil 2 – 3 mánuðum fyrir 17 ára aldurinn halda verklegar kennslustundir áfram hjá ökukennara. Á þeim tíma þarf ökuneminn að ljúka eða hafa lokið Ökuskóla 2 á netinu og að ljúka eða hfa lokið námi í Ökuskóla 3 sem telur 2 verklegar kennslustundir sem teljast hluti af verklegu námi og 3 bóklegar kennslustundir. Ökuskóla 3 má ljúka á undan Ökuskóla 2 og á tímabilinu meðan á æfingaasktri stendur.

Bóklegt próf má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára aldurinn. Eftir að ökunemi hefur klárað að lágmarki 14 kennslustundir í verklegu námi og staðist bóklegt próf sem fram fer hjá Frumherja, má hann taka verklegt próf en þó ekki fyrr en 2 vikum fyrir 17 ára afmælið.

Verklega prófið samanstendur af munnlegu prófi og prófi í aksturshæfni. Í munnlega prófinu er spurt út í búnað og öryggisatriði prófbifreiðar. Að því loknu fer fram próf í Aksturshæfni þar sem ekið er um í umferð og prófdómari fylgist með próftakanum.

Ökukennari útvegar bifreiðina sem notuð er í verklega prófið og er það sú bifreið sem ökunemi lærði á.

Þegar ökunemi hefur staðist bílpróf fær hann útgefið bráðabirgðaökuskírteini sem gildir í 3 ár. Þó svo neminn sé kominn með ökuréttindi þá er litið svo á að á gildistíma þess skírteinis sé hann á reynslutíma og að ökunáminu sé ekki formlega lokið fyrr en við útgáfu fullnaðarskírteinis. Hægt er að sækja um fullnaðarskírteini eftir 12 mánuði ef ökuneminn hefur ekki fengið refsipunkt í ökuferilskrá og viðkomandi hefur farið í akstursmat hjá ökukennara.

Mismunandi er hvað ökutíminn kostar. Kanna þarf tímaverð hjá ökukennarar áður en námið hefst. Hver tími er að jafnaði 45 mínútur.

Annar kostnaður:

  • Ökuskóli 1: 10.800 – 13.500 (Netökuskólar, sjá í flipa 2).
  • Ökuskóli 2: 9.800 – 13.500 (Netökuskólar, sjá í flipa 2).
  • Ökuskóli 3: 53.900.
  • Námsheimild og útgáfa fyrsta ökuskírteinis: 4.300.
  • Prófgjald til Frumherja f/bóklegt próf: 7.583.
  • Prófgjald til Frumherja f/verklegt próf: 19.619.

Reikna má með að allt ökunámið með öllum kostnaði sé um 335.000 – 350.000 en það fer eftir því hvaða ökuskóli verður fyrir valinu og hversu marga verklega ökutíma þarf að taka. Hér að ofan er miðað við 15 verklega tíma hjá ökukennara sem er lágmarks fjöldi kennslustunda.

1 Fyrstu skref - Námsheimild

2 Ökuskólar

3 Kennsluakstur - Æfingaakstur

4 Síðari hluti ökunáms

Um það bil 2 – 3 mánuðum fyrir 17 ára aldurinn halda verklegar kennslustundir áfram hjá ökukennara. Á þeim tíma þarf ökuneminn að ljúka eða hafa lokið Ökuskóla 2 á netinu og að ljúka eða hfa lokið námi í Ökuskóla 3 sem telur 2 verklegar kennslustundir sem teljast hluti af verklegu námi og 3 bóklegar kennslustundir. Ökuskóla 3 má ljúka á undan Ökuskóla 2 og á tímabilinu meðan á æfingaasktri stendur.

5 Prófin

Bóklegt próf má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára aldurinn. Eftir að ökunemi hefur klárað að lágmarki 14 kennslustundir í verklegu námi og staðist bóklegt próf sem fram fer hjá Frumherja, má hann taka verklegt próf en þó ekki fyrr en 2 vikum fyrir 17 ára afmælið.

Verklega prófið samanstendur af munnlegu prófi og prófi í aksturshæfni. Í munnlega prófinu er spurt út í búnað og öryggisatriði prófbifreiðar. Að því loknu fer fram próf í Aksturshæfni þar sem ekið er um í umferð og prófdómari fylgist með próftakanum.

Ökukennari útvegar bifreiðina sem notuð er í verklega prófið og er það sú bifreið sem ökunemi lærði á.

6 Akstursmat

Þegar ökunemi hefur staðist bílpróf fær hann útgefið bráðabirgðaökuskírteini sem gildir í 3 ár. Þó svo neminn sé kominn með ökuréttindi þá er litið svo á að á gildistíma þess skírteinis sé hann á reynslutíma og að ökunáminu sé ekki formlega lokið fyrr en við útgáfu fullnaðarskírteinis. Hægt er að sækja um fullnaðarskírteini eftir 12 mánuði ef ökuneminn hefur ekki fengið refsipunkt í ökuferilskrá og viðkomandi hefur farið í akstursmat hjá ökukennara.

7 Verð fyrir bílprófið

Mismunandi er hvað ökutíminn kostar. Kanna þarf tímaverð hjá ökukennarar áður en námið hefst. Hver tími er að jafnaði 45 mínútur.

Annar kostnaður:

  • Ökuskóli 1: 10.800 – 13.500 (Netökuskólar, sjá í flipa 2).
  • Ökuskóli 2: 9.800 – 13.500 (Netökuskólar, sjá í flipa 2).
  • Ökuskóli 3: 53.900.
  • Námsheimild og útgáfa fyrsta ökuskírteinis: 4.300.
  • Prófgjald til Frumherja f/bóklegt próf: 7.583.
  • Prófgjald til Frumherja f/verklegt próf: 19.619.

Reikna má með að allt ökunámið með öllum kostnaði sé um 335.000 – 350.000 en það fer eftir því hvaða ökuskóli verður fyrir valinu og hversu marga verklega ökutíma þarf að taka. Hér að ofan er miðað við 15 verklega tíma hjá ökukennara sem er lágmarks fjöldi kennslustunda.

Sækja um námsheimild Sækja um ökunám